allt brjalað ..
Jæja ...
Af hverju ætli marr sé alltaf að blanda sér inní nýjar og nýjar heimasíður?!
Fyrst var það blog.central.is/karen1987 , svo fékk ég leið á henni .. frétti af þessum siðum og langaði að prufa en er ekki beint búna fá leið enn er allavega komin yfir á www.blog.central.is/jeee_fuckit (Sem ég blogga mest á þessa dagana) Við vorum svo nokkra að starta með nýja síðu , erum 7 stelpur semað þekkjumst voða lítð .. siðan okkar er www.blog.central.is/unknown_ Endilega kíkiði!
En jamm ég ligg fyrir núna, er búna vera bara drulluveik síðan eftir verslunnarmannahelgina!! ég bloggaði um allt það a www.blog.central.is/jeee_fuckit ... og þar eru lika myndir=) ... en jáh ég ætla leggjast uppí sófa aftur , mig er farin að svima meira
læt heyra e-h í mér seinna... until then ... take care;* Karen Ösp Kæja;*
komin heim :)
Hæjjj !
Kannski komin tími á eitt langt blogg frá mér ?! Ég & Bóbó mín komum til landsins á þriðjudagskvöldið um 23:30 . Þetta var um það bil 8-10 tíma ferðalag og við vorum báðar gjörsamlega búnar á því þegar við komum heim! Ferðin sjálf var hreint út sagt ÆÐISLEG! Við vorum 2 vikur útá Fuertaventura sem er eitt af kanarí - eyjunum. Fyrsta kvöldið okkar gekk ekkert sem best! hehe .. sko við þurftum að sitja um klukkutíma í rútu frá flugvellinum að hótelinu .. þegar þangað var komið þá þurftum við náttla að fara brasa að því að tjékka okkur inn , sem gekk alveg okey. En svo þurftum við að fara drösla töskunum okkar uppá herbergi .. sem gekk ekkert of vel! Við vorum í einhvern tíma að rölta bara um hótelið með töskurnar, fundum ekki herbergi okkar! hehe ... ég meina hótelið er HUGE!! en við fundum það allavega fyrir rest, komum okkur fyrir og ætluðum svo að fara niðrí búð að kaupa eitthva að drekka og borða... neinei þá var búðin lokuð!Við redduðum okkur þannig að við stálumst í kvöldmat inná hótelinu , skelltum einhverju í okkur og hlupum bókstaflega út hehe . Við stóðum alveg útúr af öllum íslendingahópnum get ég sagt , stundum var marr ekki alveg að fíla það! hehe. Við lágum nú ekkert mikið í sólinni .. held að við höfum farið 1 sinni útá strönd og 2 eða 3 sinnum útí sundlaugargarð í sólbað! Enda erum við eilla ekkert brúnar. Þetta var meira og minna bara fyllerí!;)
Við kynntumst hinum og þessum .. og þeir sem svona standa uppúr einna helst eru DAVIDAS , DAVID , WALTER , RENNY , OLIVER , SONJA , ALLAH , afi Baddi einsog ég kallaði hann , Gunni , Hrafnhildur og Jói frændi einsog ég sagði alltaf og jám ... bra mjög margir:) Ég & Bóbó mín vorum í uppáhaldi hjá barþjónunum!! Sem var allgjör snilld því að stundum eftir að það var búið að loka , þá redduðu þeir manni alltaf meira;) Snillingar! Svo var alltaf einn voða brandari í gangi ... sko 2 kvöldið okkar þarna .. þá fórum við á diskóið á hótelinu .. fengum okkur bjór og sonna... entum á því að verða pínu wasted ( allavega ég ) Það var þá sem við kynntumst ALLAH ( sem var barþjónn þá).
Þegar það lokaði þar .. kom Allah uppá herbergi til okkar til þess bra að spjalla og kynnast. Mín orðin pínu full og eins mikil trunta og ég er .. þá var ég með pínu læti=/ Sem endaði þannig að ítalski karlskröggurinn hliðiná okkur hringdi á security!! En það sem ég var að meina með þessu var það ... að báðir security kallarnir voru alltaf vinkandi mér og eitthva ... OJ ! en marr nýtti sér það bara ... enda fengum við ekkert meira security á okkur alla ferðina;) Fylleríin hjá okkur voru mörg mjög skrautleg , við mættum 1-2 fullar í morgunmat!!! ... það var náttla alveg toppurinn sko;) Enda alltaf hvort sem við vorum fullar eða hva .. þegar við löbbuðum inní matsal ... við fengum heví athygli!hehehe ;)
Eftir að okkur var eitt sinn boðið á deit .. þegar við vorum að éta! af þjónum!þá sagði bóbó mín við mig... : NO MORE OLA FOR YOU!!! shitt ég hef aldrei hlegið eins mikið og þá ... hló alveg út allan matinn ... á leiðinni uppá herbergið og gjörsamlega missti mig þar , enda tók bóbó það allt upp ;) alveg 2 tímar! fólk hefur haldið að ég ætti eitthva erfitt!
Ég verð að segja frá kvöldinu sem við kynntumst Renny&Oliver! Það var snilld ... við spurðum þá hvort þeir vildu spila .. hehe og kenndum þeim olsen olsen upp&niður! Fyndið hvernig þeir sögðu alltaf búin og pass .. ( þeir eru sko bretar! ) .. kom þannig út .. sko búin sem bbbbúinn!..og pass sem passsss!!!!!! hehehe ég gleymdi þessu kvöldi aldrei:)
Fórum nirrí diskóið .. ég og renny sátum frammi að spjalla .. smá trúnó í gangi :/ .. svo fór oliver uppá herbergi því hann var að drepast .. þá fór bóbó eitthva og ég og renny sátum bara .. og þessi elska var alltaf að segjast elska mig og tók utan um mig ..awwwww krútt:) fórum útað sundlaug og sátum þar .. þá hélt hann alltaf í hendina á mér .. fólk sem labbaði áfram hélt að við værum saman .. hehehe bara betra! ég fékk þó frið á meðan :) annars þá var alltaf eitthva að gerast .. við létum flétta okkur! En því er ver og miður að ég þurfti að taka þær úr mér seinasta kvöldið , því mig klæjaði svo mikið:( Fólk getur nú samt alveg séð myndir!;) En jamm ... ég nenni eilla ekki að segja frá fleira .. þótt helling sé að segja;) ... þá er bara að spyrja!! En ég læt þetta þá bara nægja í bili .. hafið það gott!! Látið heyra í ykkur;)
KÆJA
Rítalín eða?!?!
Hæj :)
Mig langaði bara að segja nokkur orð! ég er í svo geggjað góðu skapi núna , Hemmi brói var að hringja af sjónum áðan!:) Ó hann brósi , vá hva það var eitthva þægilegt að tala við hann! Hlakka geggjað til .. þeir eiga að koma í land á milli 10 & 12 í fyrramálið { laugardag } Gussi & Hemmi að koma!!! En jáh .. í dag , hringdi bóbó í mig .. ég var í búðinni að versla .. og var að spyrja mig hvort ég væri ekki til að vera með í róðri fyrir frystó á dalvík .. jújú auðvitað hjálpaði ég bóbó og sagði jáh. Við fórum svo inná dalvík kl 21:00 í kvöld .. var æfing .. og jáhmm ... guð minn eini , ég var sko látin stjórna hópnum og þvílíkt&annað eins!! ég segji nú ekki bara annað=/
Anyways .. spáið í því .. ég er að fara suður á mánudaginn og út á þriðjudag !!!!!=) Allt orðið klárt !!!=) komin smá tilhlökkun .... en ég er farin að hvíla mig ... mikið að gera á morgun;) Þið hafið það fínt ... djamm djamm djamm !!;);) sjáumst á sjómannaballinu !
|
Kæja Ösp
Ógisslega sátt með sjálfan mig núna , shitt hva ég er heppin að eiga Hemma bróa!! hehe ;)
búið
ég er hætt , nenni þessu ekki ... það skoðar hana hvort eð er engin ...
takk fyrir mig.
crap!
halló ...
kannski að blogga eitthva um daginn í dag & gær? þ.e.a.s ef ég næ að koma þessu ömurlega netið til þess að virka=/ tölvan múttu ekki alveg að meikaða...
En jáh annars var gærdagurinn frekar erfiður skomm , ég loksins drullaði mér í vinnu! En það sem verra var að ég svaf ekki 1 mínútu um nóttina og var ekki alveg að meika að halda mér 100% vakandi :/ það voru nú sumir sem voru ekki alveg að meika það að ég hafi verið 5 daga frá , það er ljótt að marr er svona merkilegur að það er bannað að veikjast;) hehe ..!! Ég talaði allavega við verkstjóran , sagði honum hvernig ég var og þetta er bra allt í gúddi.
Sko morguninn fyrir hádegi var ekkert svo slæmur , ég var náttla á línunni bara ... ein í mínum heimi , var ekkert að tala við neinn .. bara ég & mín tónlist!! rétt einsog ég vil hafa það þegar ég er slöpp :/ Eftir hádegið , þá var þetta allt önnur saga! ég náttla datt bara í minn eigin heim ...
Ég átti alveg rosalega erfitt með að halda mér vakandi , sem er frekar ótrúlegt en augun voru ekki alveg að fylgjast með:/ Ekki batnaði þetta svo þegar dóri verkstjóri kom og sagði að við þyrftum að vera aðeins lengur , til að geta klárað fiskinn! Auðvitað neitaði maður því ekki ...
Um hálf 5 leytið fór ég í búðina og eitthva að snattast með Guðrúnu svo bara heim. Guðrún kíkkti svo á um kvöldið .. rosa fínt sko :)
Ehh jáh ?! dagurinn í dag .. what a crap!!
Það er ótrúlegt hva ég næ að loka mig af í kringum helling af fólki , ég var að segja það einmitt við eina stelpu í gær að það væri tilgangslaust að reyna að tala við mig. Ég bara dett út og er ekkert að spá í fólkinu í kringum mig , enda vinn ég mikið hraðar fyrir vikið. Það fer stundum ógeðslega í mann þegar maður er með heddfóninn á sér og einhver er að segja eitthva við mann ! sér að heddfóninn eru á , en fatta það samt ekki og ekki líður á löngu fyrr en það er bara plain öskrað!! shitt hva ég verð pirruð þá!:/ Það er alltaf ein viss kona ... Kannski að marr ætti bra að vera með skilti utan á sér?!það er allavega hugmynd .. kannski að fólk fatti mann þá ha ...
En jáh allavega , það varð allt crazy í dag eftir að dóri lét sig hverfa! Bjöggi var settur yfir .. klukkan var svona um korter yfir 3.. og alltíeinu kom það í ljós að það væri aðeins meiri fiskur en var búið að segja við okkur .. og kjellurnar voru sko allt annað en sáttar!! enda skiljanlegt, ég var þokkalega pirruð líka! en þetta er búið , thank god! ég er að drepast í bakinu og tilfinningalaus í hendinni eftir þetta ógeð! Ætla koma mér uppí rúmm núna , undir milljón sængur .. glápá dvd og vonast til þess að ég verði betri á morgun , ef ég skelli mér á ak ... :)
Reynið að hafa það nice um helgina .. ekki vinna fyrr en á þriðjudag!!;)
Have fun ! Take care ! Bye Bye Then !;)
Kæja Ösp .. alveg ónýt!:(
gærdagurinn ...
hæbb ..
kannski mál til komið að blogga um seinustu daga .. seinustu ömurlegu daga !! ég er ekkert búna mæta í vinnu þessa vikuna , sökum þess hvernig ég er búna vera.Ég veit það alveg að sumir halda hitt og þetta um mig , en ég ætla mér ekki í vinnu á meðan ég er svona .. ef ég verð rekin , þá verð ég bara rekin !!
Allt byrjaði þetta með helvítis blöðrubólgunni sem ég fékk í seinustu viku , svo bara einhvern veginn vatt þetta uppá sig:/ fólk þarf ekkert að vita neitt meira en það.
Núna er ég orðin ein , eða réttara sagt í gær því mamma mín fór suður til Rvk og ætlar að fara svo til Öldu systir sinnar og vera þar í viku. OG ég er bara ein , veit það að sumum finnst það geggt gaman að vera einum heima , en ég er eilla búna fá nóg af því!! Búna vera alltof oft ein heima á þessu ári .. nenni ekki meir:(
Mamma stakk nú uppá því um daginn að ég ætti bara að fljúga suður um hvítasunnuna ... ég var ekki alveg að trúa kjellunni { ekki einsog mamma sem ég þekkji !!=) }
Nei kannski að maður nái að finna sér eitthva að gera um helgina ... hættulegt þegar ég er ein með húsið!!;) hehe .. nei segji svona en jám , ég fékk sms frá Bóbó minni áðan ... VIÐ FENGUM FLUGMIÐANA OKKAR Í DAG !!!!:):):):):) núna er spennan fyrst að koma í mann , bara 12 dagar þar til við förum suður ! kannski 9 ef okkur dettur í hug að fljúga bra eftir vinnu á föstudeginum;) hlakka rosa til :* Eitt sem ég var að spá í um daginn .. um mig. Ég er alltaf eitthva hugsandi , um allt & ekki neitt . Ég gæti talað og talað og talað um ekki rass , bara fyndið þegar ég dett í góðan gír þegar ég er kannski að chatta við einhvern í síman! Ég læt allt flakka , sama hversu gróft það er .. hehehe .. mér er alveg sama hva fólki finnst , svona er bara bara ! Kolklikkuð tussa frá óló;) það eru alveg heilir 4 sem ég læt allt flakka við og ég var einmitt í gær að chatta við 2 , Dandra & Gumma! Þeir dýrka mig !! hehehe .. :p En það erum semsagt Dandri , Gummi , Óskar & Frosti .. ég segji allt við þá , sama hva !!;)
Ég veit að þeir dýrka mig , geta ekki reynt að neita því .. meira segja frosti !!muhaha ;) æði strákar:* En okey já , kannski spurning um það að reyna að borða eitthva ?! mér líður svo ógeðslega illa í maganum , þetta er ekki eðlilegt:'( Borða & sofa er eitthva sem ég þekkji ekki þessa dagana .. verð orðin the same old me áður en ég fer út. Eitt sem ég þoli ekki þegar maður er veikur , maður hefur aldrei neitt að gera ! Eða allavega ekki ég ... veistu síðan ég byrjaði að vera veik , ég held ég hafi aldrei eytt svona miklir inneign á svona miklum tíma!! hehe .. það er ekkert mál að vísu ;) Ohh mútta var að hringja .. svaka fjör hjá henni , bölvuð!
Ég ætla að skella mér í sturtu .. og bra uppí rúmm:) Kúra mig og reyna virkilega að sofa eitthva í nótt!! Bíða þar til kl 10 , heyra þá í gumma elskunni .. það er möst;)
Þar til næst .. hafið það gott .. gerið eitthva af ykkur .. og hringjið svo í mig og segjið mér frá!!;)
~Kæja Ösp~
Hlakka ógisslega að koma suður til þín ***** !!!;*;)
†R.I.P Biggi Bert†
kannki að maður segji nokkur orð, æji ég veit ekkert hva ég á að segja..!
Hræðilegt sjóslysið sem gerðist á akureyrinni á laugardaginn !! ég fékk nú allgjöran hroll fyrst þegar ég frétti þetta .. svo þegar 2 dóu , en engin vissi neitt=/ það voru 2 menn sem létust , annar er ólafsfirðingur. Flestir hérna í bænum vita alveg hver hann er... :'(
Og ég vil bara votta fjölskyldu hans og vinum mína hinstu samúð:'( Þetta var frábær strákur og hans verður sárt saknað:'( mér líður bara frekar illa útaf þessu , bara útaf því að marr vissi hver þetta var .. allir hérna þekktu hann og æji .. af hverju þarf svona að ske:'( ég bara skil ekki ...
En mér létti nú samt alveg rosalega mikið þegar ég frétti að Bambi væri komin heim .. og ég knúsaði hann:)
veik ..
hæbb ..
hva segjist? ég er að rotna úr leiðindum!! mamma er að mala í símann og shitt hva kjella getur talað!!!
Ég er búna vera heima hjá mér í gær og dag , svo virtist í fyrradag .. þegar ég og mamma fórum að tala saman að ég gæti alveg verið með blöðrubólgu ! svo var ég svona hrikalega heppin að fá vægt ofnæmiskast { verð þá þannig að nefið á mér stíflast og augun á mér bólgna upp og verða rauð!! }
Ég skrapp svo til doksa þá kom það bara í ljós að ég er með króníska blöðrubólgu , þakka þér pent!!! fkn drasl ! ég hata að vera með blöðrubólgu..!! þetta er svo vontttt... :( En allavega, lífið hérna heima við er ekki beint í merkilegri kantinum sko! Eina sem marr getur gert er að pirra einhvern með stanslausum smsum , glápá tv eða dvd , hanga í tölvunni og jafnvel .. ójá mér leiddist það mikið í dag að ég fann gamla litabók og liti og fór að lita!!!! talking about being bored ha?! .. Eitt sem ég er búna vera hugsa doldið mikið um í gær og dag .. stundum langar manni að vera einum , að fólk bara plain láti mann í friði ! ennn ... þessa daga sem ég hef verið heima hef ég bara bókstaflega rotnað úr leiðindum í hvert skipti sem mamma fór eitthva =/ sú gamla getur nú verið fínn félagsskapur við og við skomm:) þetta verður nú leiðilegt í næstu viku , mútta er að fara til rvk og verður í viku !!! Og ég verð ein heim , oj eg er komin með allgjöra leið á því !=/ vona bara að það verði fljótt að líða því að skömmu eftir að mamma kemur heim þá fer ég út !!!=) Það eru nákvæmlega 19 dagar þangað til!!! Ég er orðin svo spennt .. jesús pétur & jónathan sko!!;) hehe ! Þetta verður snilld :* Ég & Bóbó mín verðum nú nettar á kantinum á sjómannadagsballinu á óló 11 jún , ætlum sko að djamma okkur vitlausar þá { erum enda að fara suður daginn eftir !! } Þetta verður frábært:)
En ég held að þetta sé komið nóg í bili , best að koma sér bra vel fyrir uppí rúmmi og kúra sig við dvd:*:)
Hafið það gott og helgina ... og ólafsfirðingar og já auðvitað allir hinir .. EKKI GLEYMA KOSNINGUNUM Á LAUGARDAGINN!! KJÓSIÐ RÉTT!! MERKIÐ X-D ;) ..svo er náttla allgjört möst að koma uppí tjarnaborg !! ég & bóbó verðum á svæðinu!!;)
|
oj oj oj
hæbb ...
hva segjist? ... ég ligg með töluna mömmu uppí sófa, ein í mínum eigin heimi , BEWARE!!!
djöfulli var dagurinn í dag ömurlegur , sérstaklega eftir mat!! OJ hva ég var pirruð og reið .. shittttt!!=/ ég hef ekki hugsað svona illa síðan ég veit ekki hvenær .. en það er svona mest allt búið núna held ég. Þegar ég kom heim úr vinnu .. ætlaði ég í tölvunna .. en vitið menn , ég dottaði á eldhúsborðinu{ég var það þreytt!} rankaði svo við mér .. fór aðeins á msn og eitthva bra.
En jamm Eurovision ... hvernig fannst ykkur það?? .. ég er bara nokkuð sátt sko:) Ég átti mér nú mín uppáhaldslög og þau eru:
*LORDI - Hard Rock Halleluja - Finnland*
*Dima Bilan- Never Let You Go - Rússland*
*Elena Risteska - Ninananajna - F.Y.R Macedonia*
*Kate Ryan - Je T'Adore - Belgia{komst ekki í aðalkeppnina}
En auðvitað rústuðu Finnarnir þessu , ekkert annað hægt!! Þeir áttu þetta nú bara alveg fullkomlega skilið, með þetta geggjaða lag , flott sviðsframkona , snilldarbúningar og bara "one of a kind" framlag:)Þannig finnst mér það allavega... en jámm ég er ekkert mikið búna gera...
Ég & mamma elduðum snemma .. bara búin að þessu.. og ég ætla snemma uppí rúmm .. mikið að ske hjá mér þessa dagana ..
mér er geggjað kallt!.. ætla undir sæng með símann minn {von á að heyra í hinum&þessum=/} en læt þetta nægja í bili! Ætla koma hérna inná 2 gömlum myndum af mér , hehehe ;)
|
|
...***Kæja Ösp***...