komin heim :)
Hæjjj !
Kannski komin tími á eitt langt blogg frá mér ?! Ég & Bóbó mín komum til landsins á þriðjudagskvöldið um 23:30 . Þetta var um það bil 8-10 tíma ferðalag og við vorum báðar gjörsamlega búnar á því þegar við komum heim! Ferðin sjálf var hreint út sagt ÆÐISLEG! Við vorum 2 vikur útá Fuertaventura sem er eitt af kanarí - eyjunum. Fyrsta kvöldið okkar gekk ekkert sem best! hehe .. sko við þurftum að sitja um klukkutíma í rútu frá flugvellinum að hótelinu .. þegar þangað var komið þá þurftum við náttla að fara brasa að því að tjékka okkur inn , sem gekk alveg okey. En svo þurftum við að fara drösla töskunum okkar uppá herbergi .. sem gekk ekkert of vel! Við vorum í einhvern tíma að rölta bara um hótelið með töskurnar, fundum ekki herbergi okkar! hehe ... ég meina hótelið er HUGE!! en við fundum það allavega fyrir rest, komum okkur fyrir og ætluðum svo að fara niðrí búð að kaupa eitthva að drekka og borða... neinei þá var búðin lokuð!Við redduðum okkur þannig að við stálumst í kvöldmat inná hótelinu , skelltum einhverju í okkur og hlupum bókstaflega út hehe . Við stóðum alveg útúr af öllum íslendingahópnum get ég sagt , stundum var marr ekki alveg að fíla það! hehe. Við lágum nú ekkert mikið í sólinni .. held að við höfum farið 1 sinni útá strönd og 2 eða 3 sinnum útí sundlaugargarð í sólbað! Enda erum við eilla ekkert brúnar. Þetta var meira og minna bara fyllerí!;)
Við kynntumst hinum og þessum .. og þeir sem svona standa uppúr einna helst eru DAVIDAS , DAVID , WALTER , RENNY , OLIVER , SONJA , ALLAH , afi Baddi einsog ég kallaði hann , Gunni , Hrafnhildur og Jói frændi einsog ég sagði alltaf og jám ... bra mjög margir:) Ég & Bóbó mín vorum í uppáhaldi hjá barþjónunum!! Sem var allgjör snilld því að stundum eftir að það var búið að loka , þá redduðu þeir manni alltaf meira;) Snillingar! Svo var alltaf einn voða brandari í gangi ... sko 2 kvöldið okkar þarna .. þá fórum við á diskóið á hótelinu .. fengum okkur bjór og sonna... entum á því að verða pínu wasted ( allavega ég ) Það var þá sem við kynntumst ALLAH ( sem var barþjónn þá).
Þegar það lokaði þar .. kom Allah uppá herbergi til okkar til þess bra að spjalla og kynnast. Mín orðin pínu full og eins mikil trunta og ég er .. þá var ég með pínu læti=/ Sem endaði þannig að ítalski karlskröggurinn hliðiná okkur hringdi á security!! En það sem ég var að meina með þessu var það ... að báðir security kallarnir voru alltaf vinkandi mér og eitthva ... OJ ! en marr nýtti sér það bara ... enda fengum við ekkert meira security á okkur alla ferðina;) Fylleríin hjá okkur voru mörg mjög skrautleg , við mættum 1-2 fullar í morgunmat!!! ... það var náttla alveg toppurinn sko;) Enda alltaf hvort sem við vorum fullar eða hva .. þegar við löbbuðum inní matsal ... við fengum heví athygli!hehehe ;)
Eftir að okkur var eitt sinn boðið á deit .. þegar við vorum að éta! af þjónum!þá sagði bóbó mín við mig... : NO MORE OLA FOR YOU!!! shitt ég hef aldrei hlegið eins mikið og þá ... hló alveg út allan matinn ... á leiðinni uppá herbergið og gjörsamlega missti mig þar , enda tók bóbó það allt upp ;) alveg 2 tímar! fólk hefur haldið að ég ætti eitthva erfitt!
Ég verð að segja frá kvöldinu sem við kynntumst Renny&Oliver! Það var snilld ... við spurðum þá hvort þeir vildu spila .. hehe og kenndum þeim olsen olsen upp&niður! Fyndið hvernig þeir sögðu alltaf búin og pass .. ( þeir eru sko bretar! ) .. kom þannig út .. sko búin sem bbbbúinn!..og pass sem passsss!!!!!! hehehe ég gleymdi þessu kvöldi aldrei:)
Fórum nirrí diskóið .. ég og renny sátum frammi að spjalla .. smá trúnó í gangi :/ .. svo fór oliver uppá herbergi því hann var að drepast .. þá fór bóbó eitthva og ég og renny sátum bara .. og þessi elska var alltaf að segjast elska mig og tók utan um mig ..awwwww krútt:) fórum útað sundlaug og sátum þar .. þá hélt hann alltaf í hendina á mér .. fólk sem labbaði áfram hélt að við værum saman .. hehehe bara betra! ég fékk þó frið á meðan :) annars þá var alltaf eitthva að gerast .. við létum flétta okkur! En því er ver og miður að ég þurfti að taka þær úr mér seinasta kvöldið , því mig klæjaði svo mikið:( Fólk getur nú samt alveg séð myndir!;) En jamm ... ég nenni eilla ekki að segja frá fleira .. þótt helling sé að segja;) ... þá er bara að spyrja!! En ég læt þetta þá bara nægja í bili .. hafið það gott!! Látið heyra í ykkur;)
KÆJA
bið að heilsa annars :)